Við veitum alhliða ráðgjöf og þónustu á sviði umhverfis og garðyrkju og höfum mikla reynslu í uppbyggingu og umhirðu grænna svæða. Sérþekking okkar felst meðal annars í ræktun gróðurs í borgarumhverfi þar sem aðstæður geta verið mjög krefjandi og álag mikið.Við höfum mikla reynslu í uppbyggingu og umhirðu gróðurveggja á Íslandi. Við störfum með leiðandi sérfræðingum, hérlendis og erlendis, í hönnu...Við veitum alhliða ráðgjöf og þónustu á sviði umhverfis og garðyrkju og höfum mikla reynslu í uppbyggingu og umhirðu grænna svæða. Sérþekking okkar felst meðal annars í ræktun gróðurs í borgarumhverfi þar sem aðstæður geta verið mjög krefjandi og álag mikið.Við höfum mikla reynslu í uppbyggingu og umhirðu gróðurveggja á Íslandi. Við störfum með leiðandi sérfræðingum, hérlendis og erlendis, í hönnun, framleiðsu og innflutningi alls búnaðar fyrir gróðurveggi. Við veitum alla þjónustu og ráðgjöf vegna gróðurveggja, sérsniðið að aðstæðum og þörfum hvers verkkaupa.Við höfum mikla reynslu í hönnun, uppbyggingu og umhirðu gróðurþaka á Íslandi. Við höfum verið leiðandi í nýjum aðferðum við uppbyggingu gróðurþaka og byggjum þekkingu okkar m.a. á þátttöku í erlendum samstarfsverkefnum og rannsóknarverkefnum. Rétt uppbygging, m.a. val á byggingarefnum, ræktunarjarðvegi og gróðurþekju er lykil atriði til að útlit, heilbrigði og ending sé samkvæmt kröfum og þörfum verkkaupa.